Fréttir


Dagur Tónskólans 19. maí 2012 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Hinn árlegi vordagur Tónskólans verður í Hraunbergi og Gerðubergi laugardaginn 19. maí. Tónleikar verða sem hér segir:

kl. 12, 13, 14:30 og 15:30 í sal Tónskólans Hraunbergi 2

kl. 12, 13, 14:30 og 15:30 í Gerðubergi sal á 2. hæð

kl. 13 í Gerðubergi sal á 1. hæð

Allir eru velkomnir

 

 

 
Framhaldsprófstónleikar Steineyjar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Framhaldsprófstónleikar Steineyjar Sigurðardóttur sellóleikara verða í sal Tónskólans Engjateigi 1 laugardaginn 26. maí kl. 16. Steiney flytur verk eftir Bach, Boccherini, Beethoven og Schumann. Meðleik annast Júlíana Rún Indriðadóttir píanóleikari. Allir eru velkomnir á tónleikana.

 

Steiney Sigurðardóttir hóf Suzukinám í sellóleik 5 ára gömul hjá Örnólfi Kristjánssyni. Síðastliðin tvö ár hefur hún verið nemandi Gunnars Kvaran við Tónskóla Sigursveins.

Steiney hefur sótt fjölda sumarnámskeiða. Framan af sótti hún öll þau Suzukinámskeið sem í boði voru og hitti kennara á borð við Faith Farr og Ruben Rivera. Síðustu ár hefur hún tekið þátt í Tónlistarhátíð unga fólksins í Kópavogi og Tónlistarhátíðinni Við Djúpið á Ísafirði. Árið 2010 tók Steiney þátt í tónsmíðanámskeiði fyrir unga hljóðfæranemendur sem haldið var í Danmörku á einni elstu tónlistarhátíð Norðurlandanna, Nordic Music Days. Steiney hefur tvisvar tekið þátt í Nótunni fyrir hönd Tónskóla Sigursveins og komist í úrslit í þeirri keppni.

Steiney hefur verið virk í hljómsveitarleik og kammermúsík. Síðastliðin tvö ár hefur hún spilað með Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands og leitt sellóhóp Sinfóníuhljómsveitar Tónlistarskólanna, leikið með Ungfóníu og spilað sem gestur Kammerdeild Listaháskóla Íslands.

Í sumar mun Steiney sækja námskeið í Vermount í Bandaríkjunum sem kallast Green Mountain Chamber Music Festival og mun í ágúst leika með Orkester Norden í Kristiansand í Noregi og í september með sömu sveit í Helsinki á Nordic Councils Music Prize festivities.

Steiney hefur fengið inngöngu í Listaháskóla Íslands og mun hefja þar nám næsta vetur. Mun hún áfram læra undir handleiðslu Gunnars Kvaran.

Steiney stundar nám í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Í frístundum fer Steiney út að skokka, horfir á góðar bíómyndir og ís er hennar eftirlæti.

Eftir tónleikanna verður boðið upp á ís!

 

 
Framhaldsprófstónleikar Aðalbjargar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

 

Aðalbjörg Ellertsdóttir mun halda framhaldsprófstónleika sína í Aðventkirkjunni við Ingólfsstræti fimmtudaginn 24. maí kl. 19:30. Aðalheiður mun flytja verk eftir Vivaldi, von Koch, Godard og Piazzolla.

Með Aðabjörgu leika eftirtalfir hljóðfæraleikarar: Halldóra Aradóttir píanó, Greta Guðndóttir fiðla, Agne Eyja Gunnarsdóttir fiðla, Helga Þórarinsdóttir víóla, Sigríður Kristjana Ingimarsdóttir selló og Roine Hultgren bassi.

Allir eru velkomnir á tónleikana.

Aðalbjörg Ellertsdóttir er fædd árið 1993 í Reykjavík. Þegar hún var 6 ára gömul hóf hún nám í forskóladeild Tónmenntaskóla Reykjavíkur og var þar í eitt ár. Eftir það fór hún í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og lærði þar hjá Berglindi Maríu Tómasdóttur og síðar Þóru Gísladóttur. Síðustu árin hefur María Cederborg verið kennari hennar. Aðalbjörg hefur jafnframt sótt nám í píanóleik hjá Hafdísi Kristinsdóttur, Halldóru Aradóttur og jasspíanóleik hjá Kolbeini Tuma Haraldssyni.

Aðalbjörg hefur tekið þátt í margskonar samspilsverkefnum á vegum Tónskólans ásamt því að spila með Sinfóníuhljómsveit Tónlistarskólanna s.l. 4 ár. Hún hefur sótt masterklassa hjá Ian Clark, William Bennet, Melkorku Ólafsdóttur og Hallfríði Ólafsdóttur og tekið þátt í flautunámskeiðum hjá Guðrúnu S. Birgisdóttur og Martial Nardeau.

Aðalbjörg tók snemma þátt í kórstarfi s.s. í Barna- og unglingakór Grafarvogskirkju frá 7 ára aldri og sönghópi undir stjórn Keith Reed. Hún hefur einnig leikið með Lúðrasveit Verkalýðsins og tók m. a. þátt í gerð plötunnar ,,200.000 NAGLBÝTAR & LÚÐRASVEIT VERKALÝÐSINS“. Aðalbjörg er mjög virk í tónlistarlífi í kirkjunni sinni þar sem hún kemur fram bæði sem einleikari og undirleikari.

 

 
Tónleikar rytmadeildar Tónskólans Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

 

Tónskóli Sigursveins býður öllum á Vortónleika rytmísku deildarinnar í Norræna Húsinu á miðvikudaginn 23. maí. kl. 20.00. Salurinn opnar kl.19.45

Flutt verða verk í ýmsum stílum, t.d. cooljazz, calypso, funkjazz, popjazz, blues og flamenco.

Á efniskrá eru m.a. verk eftir Miles Davis (Kind of Blue, 1959), John Coltrane (Giant Steps 1960), Sonny Rollins, Jaco Pastorius, og fleiri.

 

 
Hátíð básúnunnar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Hátíð básúnunnar laugardaginn 12. maí

Hér er dagskrá básúnudagsins sem vinir hljóðfærisins efna til nk. laugardags 12. maí í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og Salnum í Kópavogi með stórstjörnuna Javier Colomer í fararbroddi.

9 - 10 Upphitun
Javier Colomer leiðir upphitun þar sem farið verður yfir öll helstu atriði básúnuleiks.

10-12 Masterklass námskeið
Hér gefst nokkrum nemendum tækifæri til að spila fyrir Javi Colomer og fá leiðsögn.

12 - 12:30 Hádegismatur
Boðið verður upp á létta hressingu fyrir alla þátttakendur.

12:30 - 13:00 Kennarar bregða á leik
Básúnuleikarar munu halda stutta og skemmtilega tónleika.

13-15 Básúnupartý
Ari Hróðmarsson mun fjalla um „óhefðbundnar” aðferðir í tónlistarkennslu og tónlistarsköpun og mun stjórna samspili allra þátttakenda í stærsta básúnukór Íslandssögunnar. Æfingin verður eitthvað styttri fyrir yngstu nemendurna.

15:00 Hlé

16-17 Salurinn í Kópavogi - Tónleikar og fjöldasamspil
Javier Colomer spilar verk fyrir bassabásúnu og píanó ásamt Ástríði Öldu Sigurðardóttur píanóleikara. Tónleikunum lýkur með fjöldasamspili allra þátttakenda námskeiðisins undir stjórn Ara Hróðmarssonar.

 

 
Framhaldsprófstónleikar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Ester Petra Gunnarsdóttir fiðluleikari mun halda framhaldsprófstónleika sína í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu nk. laugardag 12. maí kl. 16. Hún mun flytja verk eftir Bach, Mozart, Sarasate og Piazzolla.

Ester Petra (1991) hóf fiðlunám við Tónmenntaskólann í Reykjavík 5 ára gömul hjá Kristínu Th. Gunnarsdóttur. Árið 2008 varð Greta Guðnadóttir kennari Esterar, sem hefur tekið þátt í margs konar samspils- og hljómsveitarverkefnum, þ. á m. í nokkrum námskeiðum Sinfóníuhljómsveitar Tónlistarskólanna (konsertmeistari árið 2011). Auk þess hefur hún spilað með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá upphafi. Hún spilar reglulega í kirkju með hljómsveit og var að auki í valfagi í vetur hjá fiðluleikaranum Dan Cassidy að læra spuna. Hún vill þakka öllum sem hafa stutt hana og hvatt til að stunda þetta nám, þá sérstaklega kennurunum sínum, eiginmanni og fjölskyldu.

 

Allir eru velkomnir

 
Hlustunarefni M 2 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Hlustunarefni fyrir M 2 tónfræðihópinn, miðvikudögum kl. 17. Kennari Þórdís.

Slóð: http://ragnar.this.is/tsdk/th-m2/

 
„Skemmtileg lög og vísur“ Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Samstarfsverkefni Tónskólans og leikskóla í Reykjavík „Skemmtileg lög og vísur“ lauk með tónleikum í Eldborgarsal Hörpu á upphafsdegi Barnamenningarhátíðar, þriðjudaginn 17. apríl kl. 13 - 13:40.

Myndir úr Eldborgarsal Hörpu. https://plus.google.com/photos/110515403836674927324/albums


Fyrir nemendur forskólans.
Lögin finnum við undir þessari slóð, gangi ykkur vel: http://this.is/tsdk/omars

 
Morgunstund með músík Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

 

Verið öll velkomin á morgunstund með músík.
Tónlistarflutningur Gunnars og Júlíönu tekur u.þ.b. 30 mínútur.
Öllum er frjálst að sitja áfram og hlusta á námskeiðið.

 

 
Tónleikar hljómsveita 1, 2 og 3 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Verið velkomin á tónleika hljómsveita 1, 2 og 3 í Seltjarnarneskirkju laugardaginn 31. mars kl. 14.

Stjórnendur: Helga Þórarinsdóttir, Kristján Matthíasson og Örnólfur Kristjánsson

 
Að breyta hraða á tónlist Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Að breyta hraða á hljóðritaðri tónlist án þess að tónhæðin raskist.

Sjá leiðbeiningar á http://www.tonskolinn.com/vefur/suzukinam.html

 
„Fuglinn segir bí, bí, bí“ Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

„Fuglinn segir bí, bí, bí“
Námskeið fyrir ungbörn á 1. ári og foreldra þeirra.
Engjateigi 1 fimmtudaga kl. 10 - 11
22. og 29. mars, 12. og 26. apríl, 3. og 10. maí.
Leiðbeinandi Diljá Sigursveinsdóttir
Skráning og upplýsingar í síma 568 5828

 
Nótan uppskeruhátíð tónlistarskóla Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Sameiginlegir tónleikar tónlistarskóla í Reykjavík fóru fram 10. mars sl. í sal FÍH, Rauðagerði 27.

Framlag Tónskólans voru þrjú atriði.

Sænskt þjóðlag: Tákn Zorrós, „leikur og létt gaman“ Suzuki-fiðluhópur undir stjórn Aðalheiðar Matthíasdóttur. Í hópnum eru: Hrafnhildur Edda, Ásthildur Eyja, Emil, Eva Rós, Kári, Marta, Móeiður Una og Rosalía Hanna.

Frédéric Chopin: Nocturne í cís-moll op. 27 nr 1

Lilja María Ásmundsdóttir, píanó

 

Robert Schumann: Fantasiestücke

Steiney Sigurðardóttir, selló

Júlíana Rún Indriðadóttir, píanó

Af tvennum ánægjulegum tónleikum valdi dómnefnd atriði til flutnings á lokhátíð í Hörpu 18. mars.

Með þeirra var Tákn Zorrós, „leikur og létt gaman“.

Öll atriðin voru einstaklega vel flutt og er öllum nemendunum þökkuð frábær frammistaða, foreldrum og kennurum óskað til hamingju. Við megum öll vera upp með okkur af framlagi Tónskólans til Nótunnar 2012.

Lokatónleikar Nótunnar verða 18. mars í Eldborg Hörpu


 

 
Í tilefni Dags tónlistarskólanna Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Dagskrá á Engjateigi 1 laugardaginn 3. mars 2012, verið velkomin
kl. 8.30-9.30 Náttfataæfing hjá Hljómsveit 2 (ath. breyttan æfingatíma )
kl.9.30-10.20 Náttfataæfing hjá Hljómsveit 1
kl. 10.30-12.00 Allir suzukifiðluhópar
kl. 12.00-13.00 Allir suzukisellóhópar
Athugið að allir eru boðnir sérstaklega velkomnir í heimsókn þennan dag. Foráðamenn, ættingjar, bangsar og vinir! Ef þið þekkið einhvern sem hefur áhuga á að kynnast strengjastarfinu í Tónskólanum hvetjið hann þá endilega til að koma. Það verður að sjálfsögðu heitt á könnunni og djús fyrir börnin.
Hljóðfærakynning í Hraunbergi 2 laugardaginn 3. mars 2012, verið velkomin
kl. 13 - 15 hljóðfærakynning. Öllum býðst að skoða og prófa ólik hljóðfæri. Tónlistarflutningur kl. 14 - 14:20.

 

 
Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Ath. frekari upplýsingar á: http://www.sinfonia.is/fraedslustarf/fraedslustarf/ungsveit-si/

 

Ungsveit Sinfóníunnar 2012

Hljómsveitarnámskeið Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2012 stendur  frá laugardeginum 8. september til sunnudagsins 30. september. Að þessu sinni verður verkefni hljómsveitarinnar Pláneturnar, op. 32 eftir Gustav Holst. Svissneski hljómsveitarstjórinn Baldur Brönnimann stjórnar námskeiðinu sem lýkur með tónleikum í Hörpu, 30. september kl. 14:00

Baldur Brönnimann er tónleikagestum Sinfóníuhljómsveitar Íslands að góðu kunnur og hefur stjórnað hljómsveitinni við lof gagnrýnenda.

Prufuspil Ungsveitar SÍ 2012 verða haldin fyrir öll hljóðfæri 17., 18. og 20. apríl.

Nemendur þurfa að sækja um til að leika með hljómsveitinni, líka þeir sem spiluðu með síðast. Hægt verður að nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu SÍ frá og með 24. febrúar. Umsóknarfrestur til miðnættis 11. mars.

 

 
Gerið viðvart um fjarveru v. vetrarfrís Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Dagur tónlistarskólanna.

Athugið að viðburðir vegna dags tónlistarskólanna verður eftir viku, 3. mars.

Kennsla í Tónskólanum er með hefðbundnum hætti 23.,24. og 27. og 28. febrúar) þegar vetrarfrí verða í mörgum grunnskólum.

Vinsamlega gerið kennara viðvart ef nemendur komast ekki í tíma þessa daga eða látið vita í

síma 568 5828.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL