Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Námstilhögun hjá Tónskóla Sigursveins

Stundaskrá

Nemandi og kennari koma sér saman um stundaskrá í hljóðfæragreinum.
Í tónfræðagreinum liggur stundaskrá fyrir er kennsla hefst á haustin og eru tímar skipulagðir utan vinnu- og skólatíma til hagræðis fyrir nemendur eftir því sem tök eru á. Stundaskrá forskólahópa er gerð í byrjun september á grundvelli stundaskráa grunnskóla.

Kennsla

Kennsla í hljóðfæragreinum fer fram í einkatímum, 60 mín. á viku sem oftast er skipt í tvennt, 30 mín. í senn.

Í tónfræðagreinum og forskóla er ávallt kennt í hópum.

Miðað er við að nám í aðalgrein og tónfræðagreinum fylgist að.

Leyfisdagar

Hefðbundnir leyfisdagar eru þeir sömu og í almennum skólum:

  • Jólaleyfi
  • Páskaleyfi
  • Sumardagurinn fyrsti
  • Baráttudagur verkalýðsins 1.maí
  • Uppstigningardagur

 

Fjarvistir

Nemanda, sem ekki getur mætt í tíma, ber að tilkynna forföll með svo góðum fyrirvara sem mögulegt er. Um fjarvistir nemenda og kennara gilda þær almennu reglur að ekki er skylt að bæta upp einstakar kennslustundir sem falla niður vegna veikinda. Sé kennari forfallaður 1/2 mánuð samfleytt eða lengur útvegar skólinn annan kennara eða nemanda eru bættar kennslustundir sem fallið hafa niður. Ef veikindi kennara eru svo tíð að kennsla skerðist verulega, þarf að ræða málið við skólastjóra.

 

Hljóðfæraleiga

Hægt er að fá strengjahljóðfæri í undirstærðum leigð hjá skólanum. Gerður er sérstakur samningur um leigu hljóðfærisins og er leigugjald greitt samhliða námsgjaldi við innritun. Leigutaki skulbindur sig að skila hljóðfærinu í jafn góðu lagi og við upphaf leigutímans. Hljóðfæri í útleigu er ekki tryggð, en viðkomandi er bent að ráðfæra sig við tryggingafélag sitt ef ætlunin er að tryggja hljóðfærið.