| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|
Stofnun og þróun Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar
Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar var stofnaður 30. mars 1964. Forgöngu að stofnun hans hafði Sigursveinn D. Kristinsson tónskáld. Sigursveinn veitti skólanum forstöðu fyrstu 20 árin. Tónskólinn er rekinn sem sjálfseignarstofnun af styrktarfélagi. Stjórn styrktarfélagsins er einnig stjórn skólans. Í stjórninni eru 6 menn, kosnir á aðalfundi styrktarfélagsins, þar að auki einn fulltrúi tilnefndur af starfsmannafélagi og annar tilnefndur af nemendafélagi skólans. Stjórnin er nú skipuð sem hér segir:
StjórnAðalstjórnIndriði H. Þorláksson, Áslaug Helgadóttir og Sigursveinn Magnússon Fulltrúi kennaraJúlíana Rún Indriðadóttir Fulltrúi nemendaGuðfinnur Sveinsson VarastjórnÁsdís Bragadóttir, Lilja Oddsdóttir og Auðun Sæmundsson. Endurskoðendur kosnir á aðalfundiHrafnkell Björnsson og Þórólfur Daníelsson. Löggiltur endurskoðandiGunnar R. Magnússon Styrktarfélag skólansÖllum er frjálst að gang a í styrktarfélagið. Með aðild að félaginu gefst kostur á að hafa áhrif á stefnu skólans. Hægt er að láta skrá sig í félagið á skrifstofu Tónskólans. Markmið skólansMarkmið Tónskólans er að efla almenna tónlistarþekkingu meðal barna og fullorðinna. Skólinn byggir starf sitt m.a. á þeirri hugsun að með skipulegu námi og markvissum kennsluaðferðum geti allir tileinkað sér vissa færni á sviði tónlistar. Þess vegna er skólinn opinn fólki á öllum aldri og leitast við að koma til móts við þarfir þeirra sem hafa áhuga á að auka þekkingu sína og færni á þessu sviði jafnhliða öðru námi og starfi en einnig að skapa þeim, sem skara fram úr í námi, verkefni við sitt hæfi. Til að sem bestur árangur náist er lögð áhersla á að foreldrar verði þátttakendur í námi barna sinna. Þannig vill skólinn stuðla að því að tónlistariðkun verði sjálfsagður og eðlilegur þáttur í daglegu lífi okkar allra.
|
Stofnun og þróun



