| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|
Ungbarnanámskeið í Tónskóla Sigursveins"Fuglinn segir bí, bí, bí."Sungið, leikið og dansað með börnum á fyrsta ári og foreldrum þeirra. Kennslustaður: Engjateigur 1 Skráning og upplýsingar á skrifstofu Tónskólans í síma 568 5828 Tónar og hljóðBörnin okkar skynja hljóð þegar í móðurkviði. Þau heyra t.d. vel hjartslátt móðurinnar en einnig utanaðkomandi hljóð, þar á meðal söng og hljóðfæraslátt. Rannsóknir sýna að eftir að barnið er komið í heiminn hefur tónlist jákvæð áhrif á tilfinninga- og hreyfiþroska þess, að ekki sé talað um áhrif söngiðkunar á málþroska. SamveraÁ námskeiðinu læra foreldrar leiðir til að nota söng og tónlist í daglegu uppeldi og umönnun barna sinna.
Barnagælur og leikirMeð námskeiðinu er einkum ætlunin að vekja áhuga barna á söng - og foreldra á þeirri gleði sem er því samfara að eiga stundir með börnum sínum í söng, leik og iðkun tónlistar. Sungið og dansaðNámskeiðið er sex skipti, klukkutími í senn þar sem sungin eru barnalög og kvæði, leikið og dansað og notið samveru.
|
Ungbörn






